← Allar fréttir
Frí barnagæsla á Sumar Expo
Kastalar – Leiktækjaleiga annast stórt leiksvæði á sýningunni og frí barnagæsla verður í boði fyrir gesti Sumar Expo alla helgina.

Kastalar – Leiktækjaleiga og Sumar Expo hafa gert með sér samning sem felur í sér að Kastalar – Leiktækjaleiga munu annast barnagæslu á stóru risa leiksvæði á sýningunni. Gæslan verður frí alla helgina fyrir gesti Sumar Expo, þannig að krakkarnir geta skemmt sér meðan mamma og pabbi njóta þess að labba um sýningarsvæðið.