Hoppa beint í aðalefni
SUMAR EXPO

Persónuvernd

Persónuverndarstefna

Amstur Viðburðir ehf. selur aðgöngumiða og sýningarpláss á SUMAR EXPO.

Söfnun persónuupplýsinga

Amstur Viðburðir safnar persónuupplýsingum í tengslum við kaup á miðum og sýningarplássi á viðburði, og einnig þegar haft er samband í gegnum tölvupóst eða samfélagsmiðla.

Notkun persónuupplýsinga

Amstur Viðburðir geymir persónuupplýsingar og nýtir þær í samræmi við gildandi lög. Þetta þýðir að Amstur Viðburðir verndar þær persónuupplýsingar sem geymdar eru í kerfinu, og þú átt ávallt rétt á að hafa samband við Amstur Viðburði til að fá upplýsingar um hvaða gögn eru geymd um þig. Þessi stefna útskýrir hvernig Amstur Viðburðir meðhöndla þínar persónuupplýsingar þegar þú notar kerfið.

Amstur Viðburðir vinna úr þeim persónuupplýsingum sem þú gefur upp í tengslum við notkun kerfisins eða þegar þú hefur samband við okkur. Upplýsingarnar geta til dæmis falið í sér nafn, netfang, símanúmer, heimilisfang eða aðrar upplýsingar sem þú gefur upp við miðakaup eða í öðrum samskiptum við Amstur Viðburði.

Af hverju nýtir Amstur Viðburðir persónuupplýsingar?

  • Til að uppfylla skuldbindingar okkar við þig, svo sem að gera þér kleift að nálgast miða, endurheimta tapaða miða og þess háttar.

  • Til að bæta ferli við miðakaup og þjónustu.

  • Til að viðhalda góðum og skýrum samskiptum við viðskiptavini í gegnum Amstur Viðburði.

  • Til að afgreiða endurgreiðslur vegna miðakaupa.

Hverjir hafa aðgang að persónuupplýsingum þínum?

Persónuupplýsingar eru unnar af starfsfólki Amstur Viðburða. Nema að lög krefjist afhendingar persónuupplýsinga, eru þær ekki afhentar öðrum aðilum. Amstur Viðburðir afhenda eða selja aldrei persónuupplýsingar í markaðstilgangi til þriðja aðila. Allir sem hafa aðgang að gögnum eru skuldbundnir til að vinna með þau í samræmi við GDPR og lög nr. 90/2018.

Hversu lengi eru persónuupplýsingar geymdar?

Amstur Viðburðir geyma persónuupplýsingar þínar svo lengi sem nauðsyn krefur til að uppfylla gildandi skuldbindingar á hverjum tíma.

Öryggi

Amstur Viðburðir grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra ráðstafana til að vernda þær persónuupplýsingar sem unnið er með. Ráðstafanirnar tryggja öryggi í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf og taka mið af:

  • Þeim tæknilegu möguleikum sem eru í boði.

  • Kostnaði við framkvæmd ráðstafana.

  • Sérstökum áhættum sem tengjast vinnslu persónuupplýsinga.

  • Næmni þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með.

Uppfærsla á persónuverndarstefnu

Amstur Viðburðir uppfæra reglulega þessa persónuverndarstefnu, og nýjasta útgáfan er ávallt aðgengileg á www.sumarexpo.is.

Samskiptaupplýsingar

Amstur Viðburðir ehf.
Kt. 580121-2410
Gullengi 2, 112 Reykjavík
Netfang: magnus@sumarexpo.is
Sími: +354 694 9614